Meginmál

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 26,2 milljarða króna

ATH: Þessi grein er frá 16. desember 2003 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanirfór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 16.desember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigendaá ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf áávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárusttilboð að fjárhæð 26,2 milljarðar króna en á innlausn voru 17,3 milljarðarkróna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 23. desember n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans ágrundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríkiog lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs í síma 569-9664.

Nr. 51/2003

16. desember 2003