Meginmál

Breytt fyrirkomulag á miðlun upplýsinga um viðskipti Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 6. janúar 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í ársbyrjun 2004 breytist miðlun á upplýsingum um uppboð á endurhverfumverðbréfasamningum Seðlabanka Íslands við lánastofnanir samhliða því semupplýsingar um uppboð á innstæðubréfum verða birtar með reglubundnum hætti.Framvegis verða þessar upplýsingar birtar á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is á svæði sem ber yfirheitiðMarkaðir, en þar verður að finna aðgengilegt yfirlit yfir þessar aðgerðirSeðlabanka Íslands og fleiri viðskipti.

Upplýsingarnar verða birtar með þessum hætti frá og með 6. janúar 2004.Sérstakar tilkynningar um endurhverf viðskipti verða því ekki lengur sendarút.

Nánari upplýsingar um þetta veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóripeningamálasviðs Seðlabanka Íslands í síma 569 9664.

Nr. 1/2004

6. janúar 2004