Meginmál

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 9. janúar 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands ílok desember 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum ídesember 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Þar sem áramótauppgjöri ogendurskoðun er ekki að fullu lokið eru tölur fyrir desemberlok 2003bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanleguuppgjöri.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 0,3 milljarðakróna og nam 58,1 milljarði króna í desemberlok (jafnvirði 819 milljónaBandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans vegnagjaldeyrisforða voru engin í lok ársins en námu rúmlega 16 milljörðum króna íbyrjun þess.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaðifyrir 3,7 milljarða króna í desember í samræmi við áætlun hans um aðgerðir tilað styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,4% í desember og um 1,2% á árinuöllu.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna ídesemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf útgefin afríkissjóði 0,7 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanirlækkuðu um 17,6 milljarða króna í desember og námu 24 milljörðum króna í lokmánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 4milljörðum króna í mánaðarlok. 

Innstæður innlánsstofnana lækkuðu um 16,7milljarða króna í mánuðinum en í desember var bindiskylda lækkuð, almennuminnstæðum breytt í innstæður með bindiákvæðum og sérstökum bindireikningumlokað.

Nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um3,1 milljarð króna í desember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 22,1 milljarðikróna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í desember um 11,6milljarða króna og nam 21,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánariupplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókarií síma 569-9600.

Nr. 2/2004

9. janúar 2004