Meginmál

Útgáfudagar Peningamála og þjóðhags- og verðbólguspár 2004

ATH: Þessi grein er frá 19. janúar 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að gefa ársfjórðungsrit sittPeningamál út einum mánuði seinna frá og með árinu í ár en hingað tilhefur verið gert, þ.e. í mars, júní, september og desember. Þessir útgáfumánuðirhenta betur í skipulagningu verkefna sem tengjast útgáfu Peningamála,auk þess sem ætla má að á heildina litið henti þeir betur til þess að komagreiningu og spám bankans á framfæri en fyrri útgáfumánuðir.

Einnig hefurverið ákveðið, að höfðu samráði við forsætisráðuneytið, að fullbúnar þjóðhags-og verðbólguspár verði hér eftir birtar tvisvar á ári en ekki fjórum sinnum.Spárnar verða birtar í júní- og desemberheftum Peningamála.Seðlabankinn mun birta spár oftar ef hann telur til þess tilefni og þá annaðhvort uppfærslur á síðustu spám eða fullgerðar spár. Í þeim heftumPeningamála þar sem ekki verða birtar þjóðhags- og verðbólguspár verðurengu að síður birt greining á framvindu efnahagsmála, horfum eins og þær kunnaað hafa breyst frá birtingu síðustu spár og í sumum tilvikum sem fyrr segiruppfærsla á síðustu spám. Í næsta hefti Peningamála sem gefið verður útí mars n.k. verður birt uppfærsla á spá bankans frá nóvember sl.

Gerðfullbúinnar þjóðhags- og verðbólguspár krefst mjög mikillar vinnu og hæpið er íþví ljósi að ávinningurinn af fjórum spám á ári sé nægur. Þá skiptir einnig máliað mun betra jafnvægi ríkir nú í þjóðarbúskapnum en fyrst eftir að 2½% verðbólgavarð meginmarkmið peningastefnunnar í mars 2001. Því er vonast til að sveiflur íverðbólgu verði minni en áður og af þeim sökum verði ekki nauðsynlegt að geraeins tíðar spár. Þá má geta þess að ýmsir seðlabankar með verðbólgumarkmið semSeðlabanki Íslands ber sig gjarnan saman við birta spár tvisvar eða þrisvar áári.

Í mars- og septemberheftum Peningamála, þ.e. þeim heftumþar sem ekki verða birtar fullbúnar þjóðhags- og verðbólguspár, verða birtarúttektir bankans á fjármálastöðugleika.

Í samræmi við ofangreint verðaútgáfudagar Peningamála í ár eftirfarandi: 17. mars, 1. júní, 17.september og 2. desember.

Nánari upplýsingar veita Birgir ÍsleifurGunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og Már Guðmundssonaðalhagfræðingur bankans í síma 569-9600.

Nr. 3/2004

19. janúar 2004