Seðlabanki Íslands stendur fyrir málstofum um margvísleghagfræðileg viðfangsefni á hverju misseri. Fyrsta málstofa á þessu ári verðurhaldin næstkomandi fimmtudag 5. febrúar og hefst kl. 15:00. Málshefjandi erGylfi Zoega og ber erindi hans heitið Þjóðhagslegir hnykkir oghagsveifla til langs tíma. Vakin er sérstök athygli á að framvegis verða málstofurnar að jafnaði áfimmtudögum. Önnur málstofa verður fimmtudaginn 19. febrúar kl. 11:00, en þá munJens Henriksson, aðstoðarráðherra í sænska fjármálaráðuneytinu fjalla umreynsluna af mistökum Svía í ríkisfjármálum.
Nánari upplýsingar um málstofurnar eru á sérstakri síðu.Nánar