Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur breytt reglum um viðskipti bindiskyldralánastofnana við bankann. Í breytingunni felst að samningstími sem gildir umreglulegar markaðsaðgerðir bankans, þ.e. endurhverf viðskipti og söluinnstæðubréfa, styttist úr 14 dögum í 7 daga frá og með 1. júní n.k.
Lausafjárfyrirgreiðsla Seðlabankans við lánastofnanir hefur um árabil byggstá vikulegum uppboðum bankans á endurhverfum verðbréfaviðskiptum. Frá lokumsíðasta árs hefur bankinn einnig boðið lánastofnunum að kaupa innstæðubréf ívikulegum uppboðum. Til þessa hefur samningstíminn í hvoru tveggja verið 14dagar. Stytting hans í 7 daga ætti að auðvelda lausafjárstýringu lánastofnana.Seðlabanki Evrópu breytti reglum sínum með hliðstæðum hætti um sl. áramót.
Samráð var haft við lánastofnanir við undirbúning breytingarinnar.
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Tómas ÖrnKristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs bankans í síma 569-9600.
Nr. 13/2004
19. maí 2004