Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum 27. september 2004
ATH: Þessi grein er frá 27. september 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Einu breytingarnar að þessu sinni eru í II. kafla vaxtatilkynningarinnar þar sem vextir verðtryggðra lána lækka úr 5,4% í 4,2%. Ástæða þessarar miklu lækkunar má rekja til nýrra íbúðalána banka og sparisjóða sem allir bjóða 4,2% vísitölubundna langtímavexti. Aðrir þættir vaxtatilkynningarinnar breytast ekki frá fyrri mánuði.