Ársfundur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans og tengdirfundir fóru fram dagana 2. til 5. október í Washington. Laugardaginn 2. októbervar haldinn haustfundur í fjárhagsnefnd sjóðsins (International Monetaryand Financial Committee, IMFC). Formennska í kjördæmi Norðurlandaog Eystrasaltslanda er í höndum Noregs frá 2004 til 2005. FjármálaráðherraNoregs, Per-Kristian Foss er því fulltrúi kjördæmisins í fjárhagsnefndinni ogtalar hann fyrir hönd þess. Á sunnudeginum 3. október var haldinn ársfundurAlþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans.
Seðlabankastjóri Finnlands,Erkki Liikanen, flytur ársfundarræðu kjördæmisins að þessu sinni. Ræðurkjördæmisins eru birtar í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands ogAlþjóðagjaldeyrissjóðsins.