Meginmál

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok september 2004

ATH: Þessi grein er frá 6. október 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningurSeðlabanka Íslands í lok september 2004 og til samanburðar í lok ágúst 2004 og ílok desember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 1,6milljarða króna í september sl. í samræmi við áður kynnta áætlun hans umaðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína.  Þrátt fyrir gengistap afvöldum 0,6% hækkunar á gengi krónunnar í september jókst gjaldeyrisforði bankansum 0,3 milljarða króna í mánuðinum og nam 71,1 milljarði króna í lok hans semjafngildir 1.004 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir minnkuðu um 11,5 milljarða króna íseptember og námu 9,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrarfjármálastofnanir jukust og námu 10,7 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,2 milljörðum króna í septemberlokmiðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir drógust saman í mánuðinum um 5,3milljarða króna og námu 18 milljörðum króna í mánaðarlok, en skuldir við aðrarfjármálastofnanir stóðu því sem næst í stað.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana minnkuðu um 3,9 milljarða króna íseptember og námu 20 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans minnkaði í september um 5,5 milljarða króna og nam 29milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttiraðalbókari í síma 569-9600.

Nr. 27/2004

6. október 2004