Meginmál

Ráðstefna í tilefni afmælis Fjármálatíðinda

ATH: Þessi grein er frá 20. nóvember 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Afmælisráðstefna Fjármálatíðinda var haldin áHótel Nordica dagana 18. og 19. nóvember sl. Ráðstefnan var haldin í tilefniaf því að í ár eru 50 ár liðin frá því að Fjármálatíðindi voru fyrst gefin út.Fyrsti ritstjóri Fjármálatíðinda var Jóhannes Nordal en núverandi ritstjóri erBirgir Ísleifur Gunnarsson og formaður ritnefndar er Þórarinn G. Pétursson.Seðlabanki Íslands hefur gefið út Fjármálatíðindi ef frá eru talin fyrstuárin þegar Landsbanki Íslands gaf ritið út.

Á ráðstefnunni voru haldnir fjölmargir fyrirlestrarinnlendra fræðimanna. Auk yfirlitserinda var fjallað um hagstjórn ílitlu og opnu hagkerfi, um hagvöxt ogauðlindir, og vinnumarkað, lífeyri og tekjudreifingu. Fjórir hagfræðingarvoru heiðraðir fyrir mikilsvert framlag til íslenskrar hagstjórnar. Það voruþeir Jónas Haralz, Jóhannes Nordal, Bjarni Bragi Jónsson ogGuðmundur Magnússon.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá í meðfylgjandi skjali: