Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum 23. nóvember 2004
ATH: Þessi grein er frá 23. nóvember 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Vextir óverðtryggðra lána hækka um 0,5% frá fyrri mánuði, í kjölfar hækkunar vaxta innlánsstofnana vegna breytinga stýrivaxta, og eru almennir vextir óverðtryggðra lána nú 9,0%. Vextir verðtryggðra lána eru óbreyttir. Auk þess eru engar breytingar á dráttarvöxtum peningakrafna í erlendri mynt að þessu sinni.