Meginmál

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2004

ATH: Þessi grein er frá 6. desember 2004 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur SeðlabankaÍslands í lok nóvember 2004 og til samanburðar í lok október 2004 og í lokdesember 2003.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendummillibankamarkaði fyrir 4,9 milljarða króna í nóvember sl. í samræmi við áðurkynnta áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína.Gjaldeyrisforði bankans jókst um 1 milljarð króna í mánuðinum og nam 67,1milljarði króna í lok mánaðarins sem jafngildir 1.035 milljónum Bandaríkjadalamiðað við gengi í mánaðarlok. Breytingar á stærð forðans skýrast afgjaldeyriskaupum, lánahreyfingum ríkissjóðs og gengisbreytingum. Gengi íslenskukrónunnar styrktist um 3% í nóvember.

Kröfur Seðlabankans áinnlánsstofnanir hækkuðu um 12,3 milljarða króna í nóvember og námu 32,9milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir minnkuðuaftur á móti um 1,5 milljarða króna og námu 9,7 milljörðum króna ímánaðarlok. 

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,1 milljörðumkróna í nóvemberlok miðað við markaðsverð.

Skuldir Seðlabankans viðinnlánsstofnanir minnkuðu um 3 milljarða króna í mánuðinum og námu 24,5milljörðum króna í nóvemberlok, en skuldir við aðrar fjármálastofnanir jukust um24,5 milljarða króna í mánuðinum.

Nettóinnstæður ríkissjóðs ogríkisstofnana minnkuðu um 7,3 milljarða króna og námu 9,8 milljörðum króna í loknóvember.  Þar af var greitt upp skuldabréf ásamt vöxtum af því að fjárhæð5,8 milljörðum króna.

Grunnfé bankans lækkaði í nóvember um 2,9 milljarðakróna og nam 35,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingarveita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma569-9600.

Nr. 35/2004

6. desember 2004