Meginmál

Erindi Jóns Sigurðssonar bankastjóra um gjaldmiðil og gengisþróun

ATH: Þessi grein er frá 3. febrúar 2005 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Jón Sigurðsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands, flutti í morgun erindi á morgunverðarfundi Íslandsbanka um gjaldmiðil og gengisþróun. Í erindinu fjallaði Jón meðal annars um mælistikur um hagkvæmt gjaldmiðilssvæði, viðskiptakostnað í atvinnurekstri og rannsóknir og tilgátur um kostnað og hagræði við hugsanlega upptöku evrunnar. Þá fjallaði Jón um meginþætti í efnahagsþróuninni um þessar mundir, gengisþróun íslensku krónunnar að undanförnu og samhengi milli gengisþróunar og peningamálastefnu.