Meginmál

Ingimundur Friðriksson skipaður bankastjóri í Seðlabanka Íslands

ATH: Þessi grein er frá 29. júní 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Forsætisráðuneytið gaf í dag út svohljóðandi frétt:

„Forsætisráðherra hefur í dag fallist á beiðni Jóns Sigurðssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, um lausn frá embætti bankastjóra Seðlabanka Íslands. Jafnframt hefur forsætisráðherra skipað Ingimund Friðriksson, aðstoðarbankastjóra, í embætti bankastjóra í Seðlabanka Íslands til sjö ára frá 1. september n.k.

Ingimundur Friðriksson er fæddur 17. febrúar 1950. Hann hefur lokið MA prófi í þjóðhagfræði og starfað í Seðlabankanum fyrst 1973 og síðan frá 1975, auk þess að gegna störfum á vegum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ingimundur hefur verið aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands frá 1994, auk þess að vera settur bankastjóri fyrst 2002-2003 og nú síðast til loka ágústmánaðar n.k.” 

24/2006 

29. júní 2006