Meginmál

Skýrsla um norræn bankakerfi

ATH: Þessi grein er frá 28. ágúst 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Seðlabankar Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar hafa gefið út skýrslu um norræn bankakerfi. Skýrslan var samin á ensku og er samvinnuverkefni allra seðlabankanna. Í skýrslunni er fjallað um hlutverk bankakerfa Norðurlandanna og veittar upplýsingar um bankakerfi hvers lands fyrir sig, s.s. um arðsemi, eiginfjárhlutföll og skilvirkni. Einnig eru samstæður stórra norrænna banka bornar saman í ljósi þess að samruni yfir landamæri getur torveldað mat á tölum um bankakerfið. Jafnframt er fjallað um tæknivæðingu bankakerfisins og væntanlegar framtíðarhorfur auk þess sem ítarlegur tölfræðiviðauki fylgir skýrslunni.