Meginmál

Ný útgáfa af ritinu Economy of Iceland

ATH: Þessi grein er frá 5. september 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Ritið Economy of Iceland fyrir árið 2006 hefur verið birt á vef Seðlabanka Íslands. Það hefur verið gefið út af Seðlabanka Íslands frá árinu 1987. Í ritinu er fjallað um gerð íslenska hagkerfisins. Því er fyrst og fremst ætlað að ná til lesenda erlendis, svo sem starfsfólks alþjóðlegra stofnana sem fjalla reglulega um efnahagsmál á Íslandi, til starfsmanna svokallaðra matsfyrirtækja sem meta lánshæfi íslenskra lántakenda, fjármálastofnana, erlendra fjárfesta, sendiráða og almennt til þeirra sem vilja kynna sér íslenskt hagkerfi.

Ritið er hér birt sem svokallað pdf-skjal. Sjá nánar: