Gefin hefur verið út skýrsla frá skrifstofu kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltslanda hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um þau málefni sem hafa verið efst á baugi hjá framkvæmdastjórn sjóðsins síðustu sex mánuði. Skýrslan fjallar um fimm meginmálefni: Kvóta, rödd og þátttöku (e. quotas, voice and representation), eftirlitshlutverk sjóðsins, lánastarfsemi sjóðsins, fjármál sjóðsins og stuðning sjóðsins við þróunarríki.
Haustskýrsla 2006 skrifstofu Norðurlanda og Eystrasaltslanda um málefni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 11. október 2006
ATH: Þessi grein er frá 11. október 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.