Meginmál

Matsfyrirtækið Standard & Poor's birtir árlega skýrslu sína um Ísland

ATH: Þessi grein er frá 31. október 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Matsfyrirtækið Standard & Poor’s birti í dag árlega skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Fyrirtækið staðfesti óbreyttar lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt AA- (les: AA mínus) og AA+ (les: AA plús) fyrir langtímaskuldbindingar í íslenskum krónum. Ennfremur var staðfest einkunnin A-1+ (les: A1 plús) fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur fyrir lánshæfismatið eru enn neikvæðar, samanber tilkynningu Standard & Poor’s í júní sl.

Hér að neðan má nálgast skýrslu Standard & Poor’s: