Meginmál

Standard & Poor´s gaf nýrri skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs Íslands í evrum einkunnina AA-

ATH: Þessi grein er frá 21. nóvember 2006 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Í dag gaf lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s nýrri skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs Íslands í evrum með gjalddaga í desember 2011 lánshæfiseinkunnina AA-. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt eru AA- og í íslenskum krónum AA+. Einkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum er A-1+. Horfur eru neikvæðar. Þessi útgáfa er fyrsta útgáfa ríkissjóðs Íslands í evrum í viðmiðunarstærð (e. benchmark). Allri lánsupphæðinni verður varið til að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands.