Óbreyttir stýrivextir Seðlabanka Íslands 29. mars 2007
ATH: Þessi grein er frá 29. mars 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 14,25%. Í Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag eru færð rök fyrir ákvörðun bankastjórnar.
Næsta ákvörðun bankastjórnar um stýrivexti verður tilkynnt miðvikudaginn 16. maí n.k.
Nr. 6/2007
29. mars 2007