Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir 16. maí 2007
ATH: Þessi grein er frá 16. maí 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 14,25%. Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.
Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um vexti verður birt fimmtudaginn 5. júlí n.k.
Nr. 7/2007
16. maí 2007