Meginmál

Moody's staðfestir Aaa lánshæfismat ríkissjóðs

ATH: Þessi grein er frá 21. ágúst 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Hinn 20. ágúst staðfesti matsfyrirtækið Moody’s Investors Service lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í ársfjórðungslegu mati. (e. credit opinion). Staðfestar voru einkunnirnar Aaa fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar.