Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir 20. desember 2007
ATH: Þessi grein er frá 20. desember 2007 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,75%. Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.
Næsta ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður birt fimmtudaginn 14. febrúar 2008.
Nr. 23/2007
20. desember 2007
Sjá ennfremur:
Stefnuyfirlýsing bankastjórnar Seðlabanka Íslands: Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir - frétt nr. 24/2007