Meginmál

Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir

ATH: Þessi grein er frá 14. febrúar 2008 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýri­vöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 13,75%.

Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.

Samkvæmt áður birtri áætlun verður næsta reglulega ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stýrivexti birt fimmtudaginn 10. apríl 2008.

Nr. 5/2008

14. febrúar 2008