Fara beint í Meginmál

Stýrivextir Seðlabanka Íslands óbreyttir 22. maí 2008

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að breyta ekki stýrivöxtum bankans nú. Þeir verða áfram 15,5%. Í frétt sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eftir kl. 11 í dag verða rökin að baki ákvörðunar bankastjórnar kynnt.

Næsta reglulega ákvörðun bankastjórnar Seðlabanka Íslands um stýrivexti verður birt fimmtudaginn 3. júlí n.k. samhliða útgáfu Peningamála.

Nr. 18/2008

22. maí 2008