Fara beint í Meginmál

Moody's staðfestir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands 18. september 2008

Hinn 17. september staðfesti matsfyrirtækið Moody's Investors Service lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands í reglubundnu mati sínu (e. credit opinion). Staðfestar voru einkunnirnar Aa1 fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar.