Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands 22. apríl 2009
ATH: Þessi grein er frá 22. apríl 2009 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands vegna ákvörðunar um stýrivexti hinn 8. apríl síðastliðinn er nú aðgengileg hér á vef bankans.
Peningastefnunefnd birtir fundargerðir af fundum sínum um stýrivexti tveimur vikum eftir hverja ákvörðun. Hér birtist fundargerð funda peningastefnunefndarinnar 7. apríl 2009, en á þeim ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum, stýrivaxtaákvörðunina 8. apríl og kynningu þeirrar ákvörðunar.
Fundargerð peningastefnunefndar 7. apríl 2009.pdf
Næsti vaxtaákvörðunardagur er 7. maí 2009.