Fara beint í Meginmál

Heimsókn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til Íslands dagana 19. til 28. maí 200929. maí 2009

Sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum undir forystu Mark Flanagan lauk í dag rúmlega viku heimsókn sinni til Íslands. Tilgangur heimsóknarinnar var að halda áfram viðræðum við íslensk stjórnvöld um fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem gerð var í tengslum við þá lánafyrirgreiðslu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veitti íslenskum stjórnvöldum 19. nóvember sl. að fjárhæð 2,1 milljarður Bandaríkjadala. Sendinefndin átti gagnlega fundi með stjórnvöldum, þingmönnum, aðilum vinnumarkaðarins, háskólasamfélaginu og ýmsum hagsmunaaðilum.

Einnig má finna fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins um sama efni á heimasíðu þeirra.