Meginmál

Málstofa um hagsveiflur á Íslandi

ATH: Þessi grein er frá 14. ágúst 2009 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Málstofa um rannsóknir á hagsveiflum á Íslandi verður haldin í Seðlabanka Íslands þriðjudaginn 18. ágúst næstkomandi kl. 15. Frummælandi er Wolfgang Polasek, austurrískur prófessor við stofnunina Institut für Höhere Studien í Vín.

Polasek hefur sinnt hagrannsóknum við ýmsar aðrar fræðistofnanir. Sú rannsókn sem hann kynnir á málstofunni fjallar um hagsveiflur á Íslandi síðustu 40 árin. Hann beitir þar m.a. aðferðum sem kenndar eru við bandaríska hagfræðinginn Leamer.

Málstofan er í fundarsalnum Sölvhóli, gengið er inn frá Arnarhóli og hún hefst kl. 15.00 eins og áður sagði.