Meginmál

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar

ATH: Þessi grein er frá 27. janúar 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósentur. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka í 8,0%. Hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum verða 9,25%. Vextir á lánum gegn veði til sjö daga verða 9,5% og daglánavextir 11,0%. 

Nr. 1/2010 

27. janúar 2010