Meginmál

Vextir Seðlabankans lækkaðir

ATH: Þessi grein er frá 8. desember 2010 og er því orðin meira en 5 ára gömul.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans. Vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana lækka um 0,5 prósentur í 3,5% og hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum og á lánum gegn veði til sjö daga lækka um 1,0 prósentu í 4,25% og 4,5%. Þá lækka daglánavextir um 1,5 prósentur í 5,5%. 

Frétt nr. 34/2010

8. desember 2010

Sjá nánar: Vextir við Seðlabanka Íslands sem taka gildi 8. desember og 11. desember: