Hagtölur Seðlabankans: Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða 8. febrúar 2011
ATH: Þessi grein er frá 8. febrúar 2011 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
Efnahagsyfirlit lífeyrissjóða fyrir desember 2010 var birt í dag á vef Seðlabanka Íslands. Hrein eign lífeyrissjóða var 1.920,2 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 26,9 ma.kr. í mánuðinum.
Innlend verðbréfaeign hækkaði um 43,4 ma.kr. og nam rúmlega 1.352 ma.kr. í lok mánaðarins. Hækkunina má að mestu leyti rekja til aukningar á eign lífeyrissjóða á íbúðabréfum.
Sjá nánar: Lífeyrissjóðir