5. rit: Nýir staðlar greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu þjóðarbúsins 1. september 2014
ATH: Þessi grein er frá 1. september 2014 og er því orðin meira en 5 ára gömul.
5. rit
Dagsetning: september 2014
Efni: Nýir staðlar greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu þjóðarbúsins
Seðlabanki Íslands hefur birt hagtölur greiðslujafnaðar og erlendrar stöðu þjóðarbúsins samkvæmt nýjum stöðlum. Tilgangurinn með breytingunum er að hagtölurnar endurspegli betur utanríkisviðskipti og erlenda stöðu þjóðarbúsins. Hér á eftir er gerð grein fyrir helstu breytingum á hagtölunum og áhrifum þeirra.