Fara beint í Meginmál

Vefsíðan LanHeimur ekki und­ir eft­i­r­liti sem fjármálafyrirtæki hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands 15. júní 2026

Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands hafa borist ábendingar um vefsíðuna LanHeimur, sem gefur sig út fyrir að vera fjármálafyrirtæki undir eftirliti fjármálaeftirlitsins.

Fjármálaeftirlitið vill taka fram að sú starfsemi sem auglýst er á vefsíðunni er ekki undir eftirliti þess. Vegna tilvísunar á vefsíðunni til íslensks einkahlutafélags telur fjármálaeftirlitið jafnframt rétt að upplýsa að það félag virðist ekki hafa nein tengsl við starfsemi vefsíðunnar.

Fjármálaeftirlitið vill af þessu tilefni vekja athygli á viðvörun til neytenda um stafræn fjársvik, gervigreindarsvindl og svik tengdum sýndareignum sem það birti 5. febrúar síðastliðinn.

Upplýsingar um lánveitendur og lánamiðlara eru aðgengilegar á vef Neytendastofu. Upplýsingar um eftirlitsskylda starfsemi sem fellur undir eftirlit fjármálaeftirlitsins eru aðgengilegar á vef Seðlabankans.