Fara beint í Meginmál

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2026 20. ágúst 2026

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 07/2026 dagsettri 16. júlí sl. þar sem að meginvextir bankans hafa hækkað síðan þá. Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 15,75% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2026.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2026:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 8,35%
  • Vextir verðtryggðra útlána 4,35%
  • Vextir af skaðabótakröfum 5,57%