Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 917,5 ma.kr. í lok apríl og hækkuðu um 14,5 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 37,7 ma.kr. og hækkuðu um 330 m.kr. og erlendar eignir námu 879,9 ma.kr. og hækkuðu um 14,2 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 836,3 ma.kr. og hækkuðu um 9,8 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 760,4 ma.kr. og hækkuðu um 9,9 ma.kr. og erlendar skuldir námu 75,9 ma.kr. og lækkuðu um 120 m.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 879,7 ma.kr. og hækkaði um 14,2 ma.kr. í apríl.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is