Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 926,1 ma.kr. í lok júní og lækkuðu um 72 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 32,5 ma.kr. og lækkuðu um 5,4 ma.kr. og erlendar eignir námu 893,6 ma.kr. og lækkuðu um 66,6 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 869,4 ma.kr. og lækkuðu um 54,9 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 797,2 ma.kr. og lækkuðu um 52,8 ma.kr. og erlendar skuldir námu 72,1 ma.kr. og lækkuðu um 2,1 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 893,4 ma.kr. og lækkaði um 66,6 ma.kr. í júní.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is