Efnahagur Seðlabanka Íslands í október 2025 7. nóvember 2025
Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 987,4 ma.kr. í lok október og hækkuðu um 32,6 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 33,6 ma.kr. og hækkuðu um 626 m.kr. og erlendar eignir námu 953,9 ma.kr. og hækkuðu um 32 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 913,4 ma.kr. og hækkuðu um 15,2 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 840,1 ma.kr. og hækkuðu um 13,9 ma.kr. og erlendar skuldir námu 73,3 ma.kr. og hækkuðu um 1,3 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 953,7 ma.kr. og hækkaði um 32 ma.kr. í október.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is