Heildareignir Seðlabanka Íslands námu 954,9 ma.kr. í lok september og hækkuðu um 5 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar eignir námu 33 ma.kr. og hækkuðu um 337 m.kr. og erlendar eignir námu 921,9 ma.kr. og hækkuðu um 4,7 ma.kr.
Skuldir Seðlabanka Íslands námu 898,2 ma.kr. og hækkuðu um 7,8 ma.kr. á milli mánaða. Innlendar skuldir námu 826,1 ma.kr. og hækkuðu um 13,5 ma.kr. og erlendar skuldir námu 72 ma.kr. og lækkuðu um 5,7 ma.kr.
Staða gjaldeyrisforðans nam 921,7 ma.kr. og hækkaði um 4,7 ma.kr. í september.
Sjá nánari sundurliðun á efnahag Seðlabanka Íslands í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is