Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 879,7 ma.kr. í lok apríl og hækkaði um 14,2 ma.kr. milli mánaða.
Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 5,1 ma.kr. miðað við lok apríl samanborið við 4,7 ma.kr. miðað við lok mars.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is