Vergur gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 893 ma.kr. í lok júní og lækkaði um 66,6 ma.kr. milli mánaða.
Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 49,6 ma.kr. miðað við lok júni samanborið við 7,4 ma.kr. miðað við lok maí.
Í júní greiddi Ríkissjóður Íslands út evrur andvirði 55 ma. kr. í tengslum við uppgjör ÍL-sjóðs.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is