Fara beint í Meginmál

Greiðslumiðlun í júlí 2025

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 144,2 ma.kr. í júlí sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 64,9 ma.kr en velta kreditkorta var 79,3 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands júlí sl. nam 106,8 ma.kr. sem er 5,7 ma.kr. hærri velta en í júlí á síðasta ári. Veltan í júlí sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 47,7 ma.kr en velta kreditkorta var 59,2 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 34,3 ma.kr. í júlí sl. sem er 3,9 ma.kr hærri velta en í júlí á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í júlí 2025 var 50,6 ma.kr. sem er 3,1 ma.kr. hærri velta en í júlí 2024.

Tímaraðir: GRM_Timaradir_072025.xlsx

Tafla: GRM_072025.xlsx

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is