Fara beint í Meginmál

Greiðslumiðlun í júní 2025

Heildarvelta innlendra greiðslukorta var 137,3 ma.kr. í júní sl. og skiptist þannig að velta debetkorta var 61,8 ma.kr en velta kreditkorta var 75,5 ma.kr.

Velta innlendra greiðslukorta í verslunum innanlands í júní sl. nam 101,7 ma.kr. sem er 3,7 ma.kr. hærri velta en í júní á síðasta ári. Veltan í júní sl. skiptist þannig að velta debetkorta var 45,6 ma.kr en velta kreditkorta var 56,0 ma.kr. Velta innlendra greiðslukorta í verslunum erlendis nam 32,7 ma.kr. í júní sl. sem er 2,7 ma.kr hærri velta en í júní á síðasta ári.

Heildarvelta erlendra greiðslukorta á Íslandi í júní 2025 var 40,0 ma.kr. sem er 3,7 ma.kr. hærri velta en í júní 2024.

Tafla: GRM_062025.xlsx

Tímaraðir: GRM_Timaradir_062025.xlsx

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is