Eignir innlánsstofnana námu 6.092,1 ma.kr. í lok ágúst og hækkuðu um 55,1 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.446,6 ma.kr. og hækkuðu um 57,3 ma.kr. Erlendar eignir námu 645,5 ma.kr. og lækkuðu um 2,1 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.161,8 ma.kr. og hækkuðu um 10,4 ma.kr. í ágúst. Erlendar skuldir námu 1.093,9 ma.kr. og hækkuðu um 36,1 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 836,4 ma.kr. í lok ágúst og hækkaði um 8,7 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 49,1 ma.kr. í lok ágúst, þar af voru verðtryggð lán 8,2 ma.kr., óverðtryggð lán 28,9 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 10,6 ma.kr. og eignarleiga 1,5 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 7,3 ma.kr. í ágúst, þar af námu lán með veði í íbúð 4,3 ma.kr. sem var 8,7 ma.kr. hækkun frá júlí.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is