Eignir innlánsstofnana námu 6.037 ma.kr. í lok júlí og lækkuðu um 37,4 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.389,3 ma.kr. og hækkuðu um 4.7 ma.kr. Erlendar eignir námu 647,7 ma.kr. og lækkuðu um 42 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.151,5 ma.kr. og lækkuðu um 11,5 ma.kr. í júlí. Erlendar skuldir námu 1.057,9 ma.kr. og lækkuðu um 37,4 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 827,7 ma.kr. í lok júlí og hækkaði um 11,6 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 52,8 ma.kr. í lok júlí, þar af voru verðtryggð lán 4,8 ma.kr., óverðtryggð lán 36,3 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 9,8 ma.kr. og eignarleiga 2 ma.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 17,7 ma.kr. í júlí, þar af námu lán með veði í íbúð 12,9 ma.kr. sem var 8,3 ma.kr. hækkun frá júní.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is