Fara beint í Meginmál

Innlánsstofnanir í júní 2025

Eignir innlánsstofnana námu 6.074,4 ma.kr. í lok júní og hækkuðu um 131,2 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.384,7 ma.kr. og hækkuðu um 46 ma.kr. Erlendar eignir námu 689,7 ma.kr. og hækkuðu um 85,2 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.163 ma.kr. og hækkuðu um 49,4 ma.kr. í júní. Erlendar skuldir námu 1.095,3 ma.kr. og hækkuðu um 76,3 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 816,1 ma.kr. í lok júní og hækkaði um 5,5 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 64,1 ma.kr. í lok júní, þar af voru verðtryggð lán 3,2 ma.kr., óverðtryggð lán 27,3 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 27,7 ma.kr. og eignarleiga 5,9 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 8,7 ma.kr. í júní, þar af námu lán með veði í íbúð 4,6 ma.kr. sem var 3,3 ma.kr. hækkun frá maí.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi bankakerfis í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is