Fara beint í Meginmál

Innlánsstofnanir í maí 2025

Eignir innlánsstofnana námu 5.943,2 ma.kr. í lok maí og lækkuðu um 16,4 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.338,7 ma.kr. og hækkuðu um 18,9 ma.kr. Erlendar eignir námu 604,5 ma.kr. og lækkuðu um 35,3 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.113,6 ma.kr. og hækkuðu um 447 m.kr. í maí. Erlendar skuldir námu 1.019,1 ma.kr. og lækkuðu um 28,2 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 810,6 ma.kr. í lok maí og hækkaði um 11,3 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 60,5 ma.kr. í lok maí, þar af voru verðtryggð lán 11,9 ma.kr., óverðtryggð lán 23,2 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 19,2 ma.kr. og eignarleiga 6,2 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 4,6 ma.kr. í maí, þar af námu lán með veði í íbúð 1,3 ma.kr. sem var 839 m.kr. hækkun frá apríl.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi bankakerfis í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is