Meginmál

Innlánsstofnanir í mars 2025

Eignir innlánsstofnana námu 5.954,3 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 51,5 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.302,1 ma.kr. og hækkuðu um 41 ma.kr. Erlendar eignir námu 652,2 ma.kr. og hækkuðu um 10,5 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.133,2 ma.kr. og hækkuðu um 94,2 ma.kr. í mars. Erlendar skuldir námu 1.026,1 ma.kr. og hækkuðu um 17,9 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 795 ma.kr. í lok mars og lækkaði um 60,6 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 45,7 ma.kr. í lok mars, þar af voru verðtryggð lán 9,2 ma.kr., óverðtryggð lán 35,5 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum -712 m.kr. og eignarleiga 1,7 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 4,5 ma.kr. í mars, þar af námu lán með veði í íbúð 1,3 ma.kr. sem var 1,1 ma.kr. hækkun frá febrúar.

Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi bankakerfis í Gagnabankanum.

Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is