Innlánsstofnanir í september 2025 24. október 2025
Eignir innlánsstofnana námu 6.128,3 ma.kr. í lok september og hækkuðu um 36,1 ma.kr. í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 5.420,8 ma.kr. og lækkuðu um 25,8 ma.kr. Erlendar eignir námu 707,4 ma.kr. og hækkuðu um 61,9 ma.kr. Innlendar skuldir voru 4.203,9 ma.kr. og hækkuðu um 42,1 ma.kr. í september. Erlendar skuldir námu 1.082,8 ma.kr. og lækkuðu um 11,2 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 841,5 ma.kr. í lok ágúst og hækkaði um 5,2 ma.kr. í mánuðinum.
Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 67,4 ma.kr. í lok september, þar af voru verðtryggð lán 25,5 ma.kr., óverðtryggð lán 25,1 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 16,5 ma.kr. og eignarleiga 266 m.kr.
Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 10,4 ma.kr. í september, þar af námu lán með veði í íbúð 5,9 ma.kr. sem var 1,7 ma.kr. hækkun frá ágúst.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi ínnlánsstofnana í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is