Heildareignir lánasjóða ríkisins námu 652,2 ma.kr. í lok júní og lækkaði um 286,1 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir 652,0 ma.kr. og erlendar eignir 216 m.kr..
Skuldir námu 652,2 ma.kr. og lækkuðu um 286,1 ma.kr. í mánuðinum. Þar af námu innlendar skuldir 652,1 ma.kr. og erlendar skuldir 57 m.kr.
Eigið fé lánasjóða ríkisins hækkaði um 145,4 ma.kr. í mánuðinum og var neikvætt um 24,2 ma.kr. í lok júní.
Breytingar í júní skýrast að mestu leyti af uppgjöri á skuldbindingum ÍL-sjóðs sem fór fram í júní.
Sjá nánari sundurliðun á efnahagsreikningi lánasjóða ríkisins í Gagnabankanum.
Fyrirspurnir skal senda á netfangið adstod@sedlabanki.is